Kántrýdagar
Þórdísarganga

Árnes, safn
Bærinn
Flokkun og
endurvinnsla

Fréttir
Húsnæðismál
Höfnin
Íþróttaaðstaða
Kántrý
Sagan
Skipulagsmál
Spákonuarfur
Tenglar
Tjaldsvæði
Útivera og ferðalög

Bókasafn
Félagsheimili
Félagsþjónusta A-Hún
Grunnskóli
Leikskóli
Námstofa
Skrifstofa
sveitarfélagsins

Sundlaugin

Sveitarstjórn ..
3. mars 2010

Skýrslur ..
Kjörskrá 6. mars 2010

Skipulags og byggingarnefnd ..
13. maí 2009





























> Íþróttaaðstaða


Íþróttahúsið var tekið í notkun árið 1998 og er hið glæsilegasta í alla staði. Í því er 16 x 32 m. parketlagður salur þar sem hægt er að stunda fótbolta, handbolta, blak, badminton, tennis, körfubolta og fleira til að rækta líkama og sál. Einnig eru þar ljósabekkir, göngubretti og þrekhjól, aðstaða til þrekæfinga og gufubað. Í húsinu eru 3. kennslustofur, vinnuaðstaða fyrir kennara og kaffistofa. Í framtíðinni er áætlað að sundlaug staðarins verði vestan við húsið og er gert ráð fyrir að baðklefar íþróttahússins nýtist þá einnig gestum sundlaugar.

Opnunartími mánud. til fimmtud. 7:30 - 21:00, föstud. 7:30 - 19:00.

Á skólalóð er einnig sparkvöllur 18 x 33 m sem byggður var upp 2005 í samstarfi KSÍ og sveitarfélagsins. Sparkvöllurinn er klæddur með gerfigrasi og utan um hann timburgirðing sem er 1,2 m til hliðanna en allt að 2,6 m í kring um mörkin. Við sparkvöllin er öflug lýsing sem ásamt snjóbræðslukerfi gerir vetrarnotkun mögulega.

Við félagsheimilið Fellsborg er fótboltavöllur og aðstaða til iðkunar frjálsra íþrótta.
Sími íþróttahúss 4522750, umsjónarmanns íþróttahúss gsm 8614267,
Netfang: fellsborg@simnet.is


Golfvöllur
Háagerðisvöllur á Skagaströnd er ákaflega fallegur 9 holu völlur. Klettahæðir og mishæðótt landslag frá náttúrunnar hendi gera brautirnar krefjandi og fjölbreyttar. Heillandi er að njóta leiksins á skemmtilegum golfvelli þar sem útsýnið og frábært umhverfi býður hvern og einn velkominn.

„Golfvöllurinn á Skagaströnd er líklega best geymda leyndarmálið meðal kylfinga á Íslandi.“ Úr bók Edwins Rögnvaldssonar Golfhringir á Íslandi.


Stjórn Golfklúbbs Skagastrandar
Formaður: Ingibergur Guðmundsson. GSM 892 3080 ig@simnet.is
Varaformaður.: Eygló Gunnarsdóttir. GSM 861 3014
Gjaldkeri: Dagný Marín Sigmarsdóttir.GSM 892 5089
Ritari: Guðrún Pálsdóttir.GSM 895 6772
Meðstjórnandi: Finnbogi Guðmundsson.GSM 862 4395


Nefndir
Móta og vallarnefnd: Adolf H. Berndsen form., Jón Ívarsson, Ingibergur Guðmundsson, Guðmundur R. Kristinsson.
Húsnefnd: Hjördís Sigurðardóttir, Eygló Gunnarsdóttir, Guðrún Pálsdóttir.

Sveitafélagið Skagaströnd | Kt. 650169-6039 | Skrifstofa Túnbraut 1-3 | Sími: 455 2700 - Fax: 455 2701
Email: skagastrond@skagastrond.is


© 2003 NV
Innskráning