Kántrýdagar
Þórdísarganga

Árnes, safn
Bærinn
Flokkun og
endurvinnsla

Fréttir
Húsnæðismál
Höfnin
Íþróttaaðstaða
Kántrý
Sagan
Skipulagsmál
Spákonuarfur
Tenglar
Tjaldsvæði
Útivera og ferðalög

Bókasafn
Félagsheimili
Félagsþjónusta A-Hún
Grunnskóli
Leikskóli
Námstofa
Skrifstofa
sveitarfélagsins

Sundlaugin

Sveitarstjórn ..
3. mars 2010

Skýrslur ..
Kjörskrá 6. mars 2010

Skipulags og byggingarnefnd ..
13. maí 2009





























> Námstofa

Kynning á Námstofu (Microsoft PowerPoint 54kb)

Námsstofa Skagastrandar sem stofnsett var í september 2003 er mjög góð vinnuaðstaða, bæði fyrir einstaklinga og hópa. Þar eru fimm nettengdar tölvur og annar búnaður sem til þarf við fjarnám, hópverkefni eða verkefnavinnu í námi.

Námsstofan er miðstöð framhalds-og endurmenntunar á Skagaströnd og er ætlað það hlutverk að efla fullorðinsfræðslu og menntun almennt. Námsstofan er öllum opin, sem stunda fjarnám eða hyggja á slíkt nám. Aðeins þarf að gera samning við umsjónarmann Námsstofunnar og þá fær viðkomandi lyklavöld að húsnæðinu. Þannig getur hver og einn nýtt sér aðstöðuna þegar best hentar. Fyrirtæki og hópar geta einnig nýtt sér aðstöðuna til námskeiðahalds.

Á Námsstofu Skagastrandar er jafnframt veitt aðstoð við námið, ráðgjöf og upplýsingar um nám og námsval.

Þessi þjónusta stendur íbúum Skagastrandar til boða, þeim að kostnaðarlausu.

Með stofnun og rekstri Námsstofunnar er hreppsnefndar Höfðahrepps að fylgja eftir því markmiði sínu að auka menntun íbúanna og litið á Námsstofuna sem leið til að hvetja íbúa Skagastrandar til að efla menntun sína..

Námsstofa Skagastrandar
Mánabraut 3
545, Skagaströnd
Sími: 868 8774
Netfang: namsstofa@skagastrond.is


Sveitafélagið Skagaströnd | Kt. 650169-6039 | Skrifstofa Túnbraut 1-3 | Sími: 455 2700 - Fax: 455 2701
Email: skagastrond@skagastrond.is


© 2003 NV
Innskráning