






|
> Tjaldsvæði Skagastrandar
|
Tjaldsvæðið er á skjólsælum og rólegum stað efst á Bogabraut og horfir á móti sólu. Í miðju svæðisins er gamall bæjarhóll þar sem bærinn Höfðahólar stóðu. Svæðið er í fallegu umhverfi og nýtur skjóls til norðurs og austurs af lágum klettahólum sem kallaðir eru Hólaberg.
Runnar skipta svæðinu upp í nokkra reiti sem skapa þægileg umhverfi fyrir tjöld, húsbíla, hjólhýsi, fellihýsi og tjaldvagna. Rafmagnstenglar eru á nokkrum stöðum. Á svæðinu er góð aðstaða fyrir börn, spennandi umhverfi og leiktæki af ýmsu tagi.
Aðstaðan
Í þjónustuhúsinu eru vatnssalerni, þvottavél og aðstaða til að matast innanhúss fyrir þá sem það vilja og vaskur til uppþvotta.
Þar má einnig fá margvíslegar upplýsingar fyrir ferðamenn. Hæst ber að sjálfsgöðu tvo veglega bæklinga um gönguleiðir á Spákonufellshöfða og á fjallið Spákonufell. Svo er þar einnig og sem ferðalangar eru beðnir um að rita nöfn sín í hana.
Opnunartími
Tjaldsvæði er opið frá byrjun maí og fram í byrjun september.
Verð
Starfsfólk sveitarfélagins hefur umsjón með tjaldsvæðinu, tekur á móti greiðslu fyrir gistingu og aðstöðu, sér um þrif og veitir upplýsingar eftir því sem kostur er.
Greitt er fyrir hvert tjald, hjólhýsi, fellihýsi, húsbíl óhað því hversu margir dvelja í gistiaðsstöðunni. Gestir eru beðnir um að ganga snyrtilega um tjaldsvæði og hús.
Tjald, 1.000 kr. nóttin
Tjaldvagnar, fellihýsi; 1.500 kr. nóttin
Hjólhýsi og húsbílar; 1.500 kr. nóttin
Rafmagn; 500 kr. sólarhringurinn
Þvottavél; 300 kr. hvert skipti
Þvottaefni; 100 kr. hvert skipti
Sturtur eru ekki á tjaldsvæðinu, en sundlaugin er við Einbúastíg.
Upplýsingar
Skrifstofa Sveitarfélagsins Skagastrandar veitir allar nánari upplýsingar um tjaldsvæðið, sími; 848 7706, netfang; skagastrond@skagastrond.is.
|





|
|
|