Um Skagaströnd
Árnes, safn
Bærinn
Fréttir
Golfvöllur
Húsnæðismál
Höfnin
Íþróttaaðstaða
Kántrý
Kántrýdagar
Sagan
Skipulagsmál
Spákonuarfur
Sorphreinsun og
endurvinnsla
Sundlaug
Tenglar
Tjaldsvæði
Útivera og ferðalög
Þórdísarganga

















Breyting á Svæðisskipulagi Austur-Húnavatnssýslu 2004-2016

Samvinnunefnd um svæðisskipulag Austur-Húnavatnssýslu samþykkti þann 9. júní sl. tillögu að breytingu á Svæðisskipulagi Austur-Húnavatnssýslu 2004-2016.

 

a)      Breyting á svæðisskipulagi við Húnavelli sem felst í að gera ráð fyrir þéttbýli í Húnavatnshreppi. Í núverandi svæðisskipulagi eru Húnavellir skilgreindir sem þjónstumiðstöð – B flokkur, sem býður upp á talsverða þjónustu.

b)      Breyting á svæðisskipulagi á gagnaverslóð við Blönduós og færslu Svínvetningabrautar. Tillagan felst í að stækka lóðina úr 250 ha. í 272 ha. fyrir iðnaðar- og athafnasvæðis í landi Hnjúka. Breytingin felur í sér að samfeld lóð næst ef Svínvetningabraut er færð á um 3,0 km kafla og að sveitarfélagamörkum við Húnavatnshrepp. Núverandi landnotkunn er landbúnaðarnotkun og er svæðið í útjaðri Blönduóss og að hluta framræst beitarhólf.

c)       Leiðrétting á legu háspennulínu frá Geithömrum að Hurðabaki í Húnavatnshreppi. Í ljós kom að línan var rangt staðsett í núverandi svæðisskipulagi.

 

Tillagan var auglýst þann 10. apríl og lá frammi til kynningar til 5. maí sl. Frestur til að skila athugasemdum rann út þann 20. maí og bárust 4 athugasemdir. Samvinnunefnd hefur afgreitt athugasemdirnar og sent þeim sem þær gerðu umsögn sína.

Tillagan hefur verið send sveitarstjórnum Austur-Húnavatnssýslu til samþykktar og hafa þær 6 vikur til að fjalla um niðurstöðu samvinnunefndar. Samþykkt tillaga mun síðan send Skipulagsstofnun sem gerir tillögu til umhverfisráðherra um lokaafgreiðslu.

Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu samvinnunefndar geta snúið sér til Blönduósbæjar.

Samvinnunefnd um svæðisskipulag Austur-Húnavatnssýslu


Vefstjóri á skagastrond.is


Til baka
 




Nýtt á vefnum

Samþykktir ..
Gangnaseðill 2010

Sveitarstjórn ..
26. ágúst 2010

Sveitarstjórn ..
23. júní 2010



Stjórnsýsla
Sveitarstjórn
Fundargerðir
Nefndir og ráð
Eyðublöð
Gjaldskrár
Ársreikningar
Reglugerðir
Samþykktir
Skýrslur

Stofnanir
Bókasafn
Félagsheimili
Félagsþjónusta A-Hún
Grunnskóli
Leikskóli
Námsstofa
Skrifstofa sveitarfélagsins
Sundlaugin









Sveitarfélagið Skagaströnd | Kt. 650169-6039 | Skrifstofa Túnbraut 1-3 | Sími: 455 2700 - Fax: 455 2701 | skagastrond@skagastrond.is


© 2010 HUGMYNDIR