Auður HU 94 á Skagaströnd aflahæstur

Auður HU 94 á Skagaströnd hefur verið aflahæsti báturinn á landinu undir 8 bt það sem af er ári.

Landaður afli í bæði janúar og febrúar nam rúmum 20 tonnum og er Auður HU 94 eini báturinn í þessum stærðarflokki á landsvísu sem hefur landað yfir 100 tonnum það sem af er kvótaárinu.

Öllum afla hefur verið landað í heimabyggð á Skagaströnd sem verður að teljast einn besti staður á landinu til að gera út með þeim hætti sem Auður HU 94 gerir þegar horft er til byggðarkvóta sem landa má á markað og gráslepputímabilsins sem næst áður en strandveiðar hefjast svo í maí ár hvert.

Glæsilegur árangur hjá Birki Rúnari Jóhannssyni, útgerðaraðila Auðar HU 94.