68 Skagstrendingar á skíðum síðasta laugardag

Líf og fjör var í Tindastóli síðastliðinn laugardag. Fyrsta skíðaferð Umf. Fram í vetur hlaut frábæran hljómgrunn þátttakan var framar björtustu vonum. Skagstrendingar fylltu 50 manna langferðabíl og til viðbótar þurfti að fara á 4 einkabílum til þess að allir gætu komist í fjallið. Taldist okkur til að 68 Skagstrendingar hefðu mætt til leiks og besta var að allir skiluðu  sér heilir og brosandi heim aftur.

 

Að sjálfsögðu verður þessum ferðum haldið áfram á laugardögum nema annað verði auglýst.

 

Stjórn Umf. Fram