Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu og Skagaströnd

Myndir fengnar að láni hjá www.fotbolti.net
Myndir fengnar að láni hjá www.fotbolti.net

Fjórir afburða leikmenn íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu eiga rætur að rekja til Skagastrandar.

Berglind Björg Þorvaldsdóttir. Móðir hennar er Sólveig Gunnarsdóttir sem ólst upp á Skagaströnd, dóttir hjónanna, Bergljótar Óskarsdóttur og Gunnars Benónýssonar, Mánabraut 5.

Glódís Perla Viggósdóttir. Faðir hennar er Viggó Magnússon sem ólst upp á Skagaströnd, sonur hjónanna, Guðbjargar Viggósdóttur og Magnúsar B. Jónssonar, sem eiga hér heima. Móðir hennar er Magnea Harðardóttir en langamma hennar og langafi voru Laufey Jónsdóttir og Hafsteinn Sigurbjarnarson í Reykholti.

Sonný Lára Þráinsdóttir. Faðir hennar er Þráinn Þorbjörnsson sem ólst upp á Skagaströnd, sonur hjónanna, Aðalbjargar Sigurðardóttur og Þorbjarnar Jónssonar, Akurgerði. Móðir hennar er Kristjana Óladóttir, dóttir Gyðu Steingrímsdóttur frá Höfðakoti.

Sveindís Jane Jónsdóttir. Föðuramma hennar er Birna Jóhannesdóttir sem ólst upp á Skagaströnd, dóttir hjónanna, Helgu Þorbergsdóttur og Jóhannesar Pálssonar í Garði.

Það verður gaman að fylgjast áfram með þessum hæfileikaríku íþróttakonum!