Tjaldsvæðið er á skjólsælum og rólegum stað efst á Bogabraut og horfir á móti sólu. Í miðju svæðisins er gamall bæjarhóll þar sem bærinn Höfðahólar stóðu. Svæðið er í fallegu umhverfi og nýtur skjóls til norðurs og austurs af lágum klettahólum sem kallaðir eru Hólaberg.
Runnar skipta svæðinu upp í nokkra reiti sem skapa þægileg umhverfi fyrir tjöld, húsbíla, hjólhýsi, fellihýsi og tjaldvagna. Rafmagnstenglar eru á nokkrum stöðum. Á svæðinu er góð aðstaða fyrir börn, spennandi umhverfi og leiktæki af ýmsu tagi.
Aðstaðan
Í þjónustuhúsinu eru vatnssalerni, þvottavél og aðstaða til að matast innanhúss fyrir þá sem það vilja og vaskur til uppþvotta.
Ferðafólk er beðið um að ganga vel um og skilja þannig við bæði tjaldsvæðið og þjónustuhúsið þannig að aðrir geti líka notið dvalarinnar.
Opnunartími
Tjaldsvæði er opið frá 1. júní til 10. september.
Upplýsingar
Allar upplýsingar má nálgast í síma 776 0040
Netfang: skagastrond.camping@gmail.com
Fjarlægð frá Reykjavík: 266 km
Fjarlægð frá Seyðisfirði: 436 km
Gönguleiðir
Í þjónustuhúsi er hægt að nálgast upplýsingabækling um gönguleiðir, sem einnign er hægt að opna HÉR.
Frá tjaldsvæðinu er hægt að labba Jónsstíg sem er um eins kílómetra gönguleið í gegnum skógrækt. Á stígnum er bekkur sem hægt er að borða nestið.
Í upplýsingabæklingnum er talað um gönguleið um Spákonufellshöfða. Þar er staðsett fuglaskoðunarhús sem skemmtilegt er að kíkja inn í. Nánar um fuglaskoðunarhúsið HÉR.
Umfjöllun Landans á RÚV gefur skemmtilega mynd af fegurðinni á Spákonufellshöfða. Umfjöllun Landans má sjá HÉR.