Atvinna: Umönnun aldraðra á Sæborg

Hjúkrunarheimilið Sæborg á Skagaströnd óskar eftir að ráða fólk til starfa í umönnun aldraðra.

Sæborg er lítið hjúkrunarheimili staðsett miðsvæðis á Skagaströnd. Þar búa að jafnaði um 9 íbúar og vinnur heimilið eftir Lev og bo hugmyndafræðinni.

Um er að ræða vaktavinnu en hægt er að semja um starfshlutfall, vinnutíma og lengd vakta.

Mikilvægt er að viðkomandi hafi áhuga á að vinna með öldruðum, lipurð og áreiðanleika í samskiptum, sveigjanleika, frumkvæði, jákvætt viðmót og hæfni í að vinna teymisvinnu. Íslenskukunnátta áskilin.

 

Umsóknarfrestur er til 10.03.2021

Upplýsingar veitir

Jökulrós Grímsdóttir Hjúkrunarforstjóri

eða Eydís Inga Sigurjónsdóttir hjúkrunarfræðingur

Í síma 848-1801/4522-810 eða email: saeborg@simnet.is