Miðstöð um auðlesið mál og Landskjörstjórn hafa útbúið auðlesnar upplýsingar um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Þær er hægt að sjá á síðunni www.thjodaratkvaedi.is/audlesid
Meðal þess sem fjallað er um á síðunni er:
· Hvað kosningarnar snúast um.
· Muninn á ESB og EES.
· Hvað aðildarviðræður eru.
· Hvað gerist ef þjóðin segir já.
· Hvað gerist ef þjóðin segir nei.
· Og margt fleira.