Auglýsum eftir listamanni!

Sveitarfélagið hlaut í vikunni styrk frá EBÍ til þess að hanna og setja upp útilistaverk á Skagaströnd. Verkið ber yfirskriftina Þar sem hafið mætir hjartanu.

Í styrkumsókninni kemur fram að lagt sé upp með að setja upp aðgengilegt útilistaverk sem sameinar náttúruleg efni úr umhverfinu og form sem vísar bæði til öldunnar og hjartsláttar. Markmiðið er að skapa sjónrænan samastað sem hannaður er með leik og snertingu í huga þannig að börn (og aðrir áhugasamir) geti klifrað, setið, leikið sér og upplifað listina á eigin forsendum í anda þess barnvæna samfélags sem einkennir Skagaströnd.

Auglýst er eftir tillögum frá listamönnum.
Áhugasamir listamenn eru hvattir til að senda inn hugmynd að verki sem fellur að framangreindri lýsingu.

Umsókn skal innihalda:

  • Stutta lýsingu á hugmynd og nálgun
  • Skissur, teikningar eða önnur sjónræn gögn
  • Upplýsingar um efnisval og áætlaða útfærslu
  • Grófa kostnaðaráætlun og tímaramma
  • Ferilskrá og dæmi um fyrri verk

Tillögum skal skila rafrænt á til sveitarstjóra á sveitarstjori@skagastrond.is fyrir 1. maí nk.

Sveitarfélagið hvetur listamenn af öllum kynjum og bakgrunni til að sækja um og taka þátt í að móta nýtt og lifandi listaverk í hjarta Skagastrandar.

Nánari upplýsingar veitir Alexandra Jóhannesdóttir sveitarstjóri (455-2700 / sveitarstjori@skagastrond.is)