Ávaxtastund í Höfðaskóla

Mynd fengin að láni frá www.hofdaskoli.is
Mynd fengin að láni frá www.hofdaskoli.is

Ávextir og grænmeti eru ávallt í boði fyrir alla í Höfðaskóla á miðvikudögum, nemendum að kostnaðarlausu.

Krakkarnir eru mjög ánægð með fjölbreytnina og eru hvött til að smakka á öllum ávöxtum og grænmeti sem þeim er framandi.

Skólinn hlaut rausnarlegan 50.000 króna styrk frá Kjörbúðinni til kaupa á ávöxtum og grænmeti.

Við þökkum Kjörbúðinni kærlega fyrir þennan góða stuðning!

 

Myndir frá ávaxtastund má finna hér