Bætt við tækjakost hjá Sveitarfélaginu

Sveitarfélagið fjárfesti á dögunum í nýrri glæsilegri græju fyrir áhaldahúsið - John Deere 5115M dráttarvél.

Hún mun koma að góðum notum við margvísleg verkefni hjá áhaldahúsi á komandi misserum.

Við þökkum forvera hennar sem er komin á eftirlaun fyrir ánægjulegt samstarf.