Barnamenningarhátíðin Skúnaskrall fer fram dagana 21. október til 4. nóvember 2026 undir yfirskriftinni Öll saman. Hátíðin er haldin á vegum SSNV í góðu samstarfi við sveitarfélögin á Norðurlandi vestra og er markmið hennar að börn og ungmenni á svæðinu fái að njóta fjölbreyttrar og vandaðrar menningardagskrár í sínu nærumhverfi.
Listafólk, menningarstofnanir, félagasamtök, skólar og aðrir sem hafa áhuga á að standa fyrir viðburðum fyrir börn og ungmenni eða með börnum og ungmennum eru hvött til að senda inn umsókn.
Öll dagskrá Skúnaskralls verður þátttakendum að kostnaðarlausu og lögð er áhersla á virka þátttöku barna og ungmenna.
Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst, hér er umsóknarformið.