Frá og með mánudeginum 19. október n.k. mun Berglind Hlín Baldursdóttir taka tímabundið við sem starfandi skólastjóri Höfðaskóla Hún tekur við stöðunni af Guðrúnu Elsu Helgadóttur, en hún hefur ákveðið að hverfa til annara starfa.
Á fundi sem fór fram 14. október s.l. færði sveitarstjórn til bókar þakkir til Guðrúnar Elsu fyrir góð störf hjá Höfðaskóla og óskir um velfarnað á nýjum vettvangi.