Borun við Reyki fyrir hitaveitu Blönduóss og Skagastrandar

Borun við Reyki fyrir hitaveitu Blönduóss og Skagastrandar / mynd fengin að láni af heimasíðu RARIK
Borun við Reyki fyrir hitaveitu Blönduóss og Skagastrandar / mynd fengin að láni af heimasíðu RARIK

Á heimasíðu RARIK er sagt frá því að þann 26. júní hafi verið hafist við borun á fyrstu af fjórum rannsóknarholum við Reyki sem farið er í til að finna meira heitt vatn fyrir veituna, en afkastageta núverandi svæðis er að verða fullnýtt. Holurnar eru staðsettar að tillögu ÍSOR austan og vestan við núverandi vinnslusvæði í þeim tilgangi að leggja mat á stærð svæðisins, rannsaka hvort mögulega megi finna meira heitt vatn utan við núverandi vinnslusvæði og til að finna hentuga staðsetningu fyrir vinnsluholu, sem gert er ráð fyrir að boruð verði í framhaldinu. 

Verktaki við borunina er Finnur ehf. á Akureyri en það fyrirtæki hefur nýlega flutt inn nýjan öflugan beltabor sem hentar vel í umrætt verk. Ummerki á landi ættu því að vera í lágmarki, auk þess sem að nauðsynleg loftpressa er höfð á vörubíl sem getur í þessu verkefni staðið á vegslóðum sem þegar eru til staðar og þaðan lagðar loftslöngur að bornum.

 

Ætlunin er að bora fjórar rannsóknarholur allt að 500 m djúpar og út frá þeim gögnum sem fást úr holunum verður ný vinnsluhola staðsett.

 

Í dag er það þannig að öllu iðnaðar- og atvinnuhúsnæði er neitað um tengingar við hitaveitu þar sem það er mat RARIK að kerfið anni því ekki en nýtt íbúðarhúsnæði fær að tengjast veitunni svo enn sem komið er hamlar það í það minnsta ekki uppbyggingu á þeim forsendum. Það gefur auga leið að þetta er bagaleg staða fyrir Skagaströnd, Húnabyggð og RARIK og mikið forgangsmál fyrir aðila að það finnist nýjar og öflugar uppsprettur af heitu vatni sem fyrst. Er RARIK óskað velfarnaðar í þessu verkefni með von um skjótan árangur.

Meira á heimasíðu RARIK hér