Spákonufellsrétt 2020

Landssamtök sauðfjárbænda hafa gefið út leiðbeiningar vegna gangna og rétta vegna COVID-19 hættustigs almannavarna.

Leiðbeiningarnar voru unnar í samstarfi almannavarna, sóttvarnalæknis, Landssamtaka sauðfjárbænda, Bændasamtaka Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga. „Um er að ræða almennar leiðbeiningar um framkvæmd á göngum og réttum.

Það er síðan á ábyrgð sveitastjórnar, sem fer með stjórn fjallskilamála, að tryggja að reglum um sóttvarnir sé fylgt eftir og gefa út frekari leiðbeiningar ef þurfa þykir.

Áhersla er lögð á að hver og einn beri ábyrgð á eigin athöfnum og að: „Við erum öll almannavarnir“.

Leiðbeiningar má finna hér