Nú hefur nýjum glæsilegum saunaklefa verið komið fyrir á sundlaugarbakkanum!
Klefinn er klár til notkunar og gestir sundlaugarinnar geta því heldur betur látið fara vel um sig og slakað á að finnskum sið.
Við biðjum gesti að kynna sér sauna reglur sem eru aðgengilegar í sundlauginni.
Sjáumst í saunu!