Félagsstarf 60+

Ekki hefur enn tekist að ráða í starf umsjónarmanneskju félagsstarfs 60+, en vonandi næst að bæta úr því fljótlega. Á meðan ekki er búið að ráð í það starf hefur verið ákveðið að aðstaða félagsstarfs 60+ í Fellsborg verði opin á mánudögum og fimmtuögum milli kl. 15:00-17:00. Það er á sama tíma og bókasafn Skagastrandar er opið og mun bókavörðurinn Sandra sjá um að hleypa fólki inn. Mun þetta gilda þar tekið hefur að ráða í starf umsjónarmanneskjunnar.

Fyrsta opnunin með þessum hætti verður fimmtudaginn 24. september n.k.