Félagsstarf eldri borgara færist aftur í fyrra horf

Frá og með mánudeginum 19. október n.k. munu meðlimir í handavinnuhóp á Skagaströnd sjá um félagsstarf eldri borgara í Fellsborg. Starfið verður á mánudögum og fimmtudögum milli kl. 14:00 og 17:00.

Gengið hefur verið frá samkomulagi milli handavinnuhópsins og Sveitarfélagsins Skagastrandar um að þetta fyrirkomulag verði í gildi fram að jólum. Síðasti dagur fyrir jólahátíðina verður mánudagurinn 21. desember n.k. Eins og kunnugt er hefur ekki gengið að ráða í starf umsjónarmanns félagsstarfsins og því er nú prófað að fara þessa leið.