Miðvikudaginn 18. nóvember frá kl. 18:30-20, munu fermingarbörn Hólaneskirkju ganga hús úr húsi á Skagaströnd og safna peningum fyrir Hjálparstarf kirkjunnar. Fjármunirnir verða nýttir til að auka aðgengi fólks í Úganda og Eþíópíu að fersku vatni.
Við biðjum ykkur því að taka vel á móti þessum dásamlegu krökkum, sem leggja góðu verkefni lið með sínu mikilvæga framlagi!
Krakkarnir verða bæði með bauka og miða með reikningsupplýsingum.
Kærleikskveðjur
Margrét