Staðfest framboð til sveitarstjórnarkosninga geta sótt um fjárhagslegan stuðning frá sveitarfélaginu eftir þeim reglum sem hér á eftir fara:
Reglur um styrki og aðstöðu til framboða vegna sveitarstjórnarkosninga 2026
1. gr. Markmið
Markmið reglna þessara er að tryggja jafnræði þeirra framboðslista sem bjóða fram til sveitarstjórnarkosninga 2026 á Skagaströnd og stuðla að gagnsærri og sanngjarnri kosningabaráttu.
2. gr. Gildissvið
Reglur þessar taka til allra framboðslista sem hafa verið löglega skráðir til þátttöku í sveitarstjórnarkosningum í Skagaströnd.
3. gr. Tilkynning framboðs
Forsvarsmaður framboðslista skal tilkynna sveitarstjóra staðfestingu á framlögðu framboði. Við slíka tilkynningu öðlast framboðið rétt til stuðnings samkvæmt reglum þessum.
4. gr. Aðgangur að húsnæði sveitarfélagsins
5. gr. Kynningarefni og prentun
Framboðum er heimilt að nýta aðstöðu sveitarfélagsins til prentunar á einum kynningarbæklingi sem dreift er á öll heimili í sveitarfélaginu.
Prentun miðast við staðlaðan pappír.
Framboð bera sjálf kostnað ef óskað er eftir sérpappír eða öðrum sérlausnum.
6. gr. Fjárhagslegur stuðningur
Hvert framboð getur fengið fastan styrk að fjárhæð 150.000 kr. frá sveitarfélaginu, að uppfylltum skilyrðum og staðfestingu á lögmæti framboðs.
7. gr. Jafnræði og gagnsæi
Sveitarfélagið skal tryggja að öll framboð njóti jafnræðis varðandi aðstöðu og þjónustu samkvæmt reglum þessum.
8. gr. Gildistaka
Reglur þessar taka gildi þá þegar og hljóta staðfestingu sveitarstjórnar þann 22. apríl nk.
Sveitarstjóri veitir frekari upplýsingar - sveitarstjori@skagastrond.is eða 455-2700/848-0862.