Skagstrendingar áttu sína fulltrúa á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 8. og 9. október s.l. Ráðstefnan, sem fór fram í Vör við Viðeyjarsund í Reykjavík, er mikilvæg fyrir kjörna fulltrúa og lykilstarfsfólk sveitarfélaga. Hún var enda vel sótt af fólki frá sveitarfélögum frá öllu landinu.
Fulltrúar Sveitarfélagsins Skagastrandar á Fjármálaráðstefnunni voru sveitarstjórnarfulltrúarnir Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Eydís Inga Sigurjónsdóttir og Vigdís Elva Þorgeirsdóttir. Auk þeirra sótti Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri, ráðstefnuna.