Fjölmennur íbúafundur á vegum sveitarstjórnar fór fram í Félagsheimllnu Fellsborg fimmtudaginn 12. nóvember 2026. Í upphafi fundar héldur Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, oddviti sveitarstjórnar, og Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri, stuttar tölur. Í framhaldi af því fóru fram góðar umræður í sal um málefni sveitarfélagsins og möguleika í atvinnuuppbyggingu á Skagaströnd. Fundurinn er gott nesti fyrir sveitarstjórnina í störfum sínum og er stefnt að því að fundir sem þessir verði haldnir reglulega á kjörtímabilinu. Sveitarstjórnarfulltrúinn Davíð Birkir Tryggvason tók niður punkta af þeim umræðum sem fóru fram á fundinum og má sjá þá hér.









