Fjölskyldumessa í Hólaneskirkju

Skagastrandarprestakall

Fjölskyldumessa í Hólaneskirkju

sunnudaginn 29. september kl. 11. 00

 

Helgihaldið verður við hæfi allra kynslóða og tónlistin af því tagi að allir ættu að geta sungið með. Hugrún Sif Hallgrímsdóttir leikur á flygilinn og félagar úr kór Hólaneskirkju leiða söng.

Eftir messu er boðið upp á veitingar á kirkjuloftinu. Yngsta kynslóðin fær bók með biblíusögum og límmiða.

Fermingarbörn eru  hvött til að ganga til kirkju.  Fundur verður með foreldrum þeirra kl. 12.30  í kirkjunni.

KIRKJULEGT STARF Á HAUSTMISSERI

 

Sunnudagaskóli alla sunnudaga kl.11.00.

TTT - starf fyrir börn tíu til tólf ára á mánudögum kl. 14.00—15.00. Fyrsta samvera verður 30. sept. hálfum mánuði síðar 14. okt. verður samvera nr. 2.

Æskulýðsfélag Hólaneskirkju á mánudagskvöldum kl. 20.00—21.30.

Óvissuferð æskulýðsfélagsins verður farin miðvikudag 9. okt. Lagt af stað frá kirkjunni kl. 19.00 komið til baka um kl. 22.00.

Sæborg: Prestur kemur í heimsókn á miðvikudögum kl. 11.00—13.00.

Viðtalstímar við prest eftir samkomulagi.

 

Guð blessi ykkur

Bryndís Valbjarnardóttir sóknarprestur sími: 452 2695 / 860 8845.

bryndis.valbjarnardottir@gmail.com

Facebook: Skagastrandarprestakall