Flotbryggjur komnar í stand

Flotbryggjurnar á smábátahöfninni urðu fyrir hnjaski í veðrinu sem gekk yfir í lok mars.

Í gær fengum því við heimsókn frá köfurum sem að skelltu sér í sund í góða veðrinu og skiptu um lása og strekktu á keðjum.

Eru bryggjurnar því báðar komnar í hið fínasta stand fyrir sumarvertíðina í tæka tíð fyrir strandveiðarnar sem hefjast þann 4. maí nk. 

Sveitarstjóri