Langt er liðið frá síðasta fréttaskoti - en hér er það helsta!
Á Skagaströnd hefur verið unnið markvisst að umbótum á innviðum og þjónustu á undanförnum vikum, samhliða því sem undirbúningur fyrir sumarið er kominn vel á veg. Fjölbreyttar framkvæmdir, öflugir viðburðir og kraftmikið félagslíf sýna skýrt þann metnað sem einkennir samfélagið.
Styrking innviða og bætt aðstaða
Talsverðar umbætur hafa verið gerðar á Fellsborg nýverið þar sem lýsing á sviði og rafmagn hefur verið endurnýjað að stórum hluta. Jafnframt hefur verið keyptur hágæða skjávarpi sem mun nýtast í fjölbreyttu starfi hússins. Í vor verður síðan skipt um glugga á efri hæð vesturhliðar byggingarinnar.
Það stendur yfir heildarendurnýjun á allri götulýsingu í sveitarfélaginu yfir í LED-ljós sem verður lokið á næstu vikum eftir því sem veður leyfir. Áætlað er að rekstrarkostnaður lækki um allt að 55% á ársgrundvelli.
Í Höfðaskóla hefst í vikunni vinna við uppsetningu á hljóðdempandi kerfislofti og LED-lýsingu í öllum kennslustofum skólans. Með framkvæmdinni batnar vinnuumhverfi nemenda og starfsfólks verulega og verður þá um 80% skólans með LED-lýsingu með dimmerum. Í framhaldinu verður ráðist í sambærilegar hljóðvistarumbætur á leikskólanum Barnabóli, auk þess sem ný hæðarstillanleg húsgögn hafa verið keypt fyrir börnin.
Aðrar framkvæmdir framundan og viðhald eigna
Samningar hafa verið gerðir við Malbikun Norðurlands um malbikun sem hefst í maí.
Jafnframt verður ráðist í utanhússviðgerðir og málun á nokkrum fasteignum sveitarfélagsins í vor og sumar, þar á meðal Túnbraut 9, Mánabraut 7 og 9 og Skagavegi 10.
Við Skagastrandarhöfn hefur verið auglýst útboð vegna endurbyggingar Miðgarðs milli Ásgarðs. Verkefnið er mikilvægur liður í áframhaldandi uppbyggingu hafnarsvæðisins. Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með þriðjudeginum 16. febrúar 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 3. mars 2026. Nánar hér.
Sitt lítið af hverju
Íþróttahús og sundlaug - ný tæki og saunaklefi
Í íþróttahúsinu hafa ný líkamsræktartæki – stigvél, hip-thruster og fjölnota kapalvél – þegar reynst afar vel. Þá hafa verið fest kaup á glæsilegum saunaklefa sem settur verður upp við sundlaugina fyrir sumarið og mun bæta aðstöðu gesta enn frekar.
Sundbíó hjá Undirheimum:
Það er alltaf eitthvað skemmtilegt í gangi í Félagsmiðstöðinni Undirheimum. Fyrir nokkrum vikum var unglingum á Skagaströnd boðið upp á einstaka upplifun í sundlauginni. Sýnd var hin sígilda kvikmynd Jaws, eða Ókindin (1975) eins og hún nefndist á íslensku, og skapaðist sérstök stemning þegar hákarlinn birtist á skjánum á meðan áhorfendur létu fara vel um sig í vatninu.
Nemendur mættu með popp og drykki og skemmtu allir viðstaddir sér konunglega. Það var Addi Viggós sem gegndi hlutverki bíóstjóra af mikilli snild, en hann ásamt Giggu stóð vaktina þetta kvöld. Ekki var annað að heyra enn að kvöldið hafi heppnast vel og vonandi getum við endurtekið leikinn síðar.

(Mynd birt með leyfi)
Sumarnaámskeið hjá Eðalhestum
Reiðskólinn Eðalhestar býður upp á hestasumarbúðir á Skagaströnd í sumar fyrir börn og unglinga 8–15 ára. Þar er lögð áhersla á reiðmennsku, útivist og skemmtilegt félagslíf.
Heimsókn til Snarfara
Sveitarstjórn heimsótti nýverið hestamannafélagið Snarfara þar sem nýtt 16 metra hringgerði hefur risið, að mestu unnið í sjálfboðavinnu. Gerðið er mikilvæg viðbót fyrir þjálfun hesta og sýnir vel þann kraft sem býr í félaginu og sjálfboðaliðum þess. Var tekið vel á móti sveitarstjórn með kaffi og kökum og þakkar sveitarstjórn góðar móttökur.

Frábærlega heppnað þorrablót
Kvenfélagið Eining hélt glæsilegt Þorrablót 14. febrúar með frábærri mætingu og afar vel heppnuðum undirbúningi félagskvenna og sjálfboðaliða. Á kvenfélagið hrós skilið fyrir viðburðinn.
112-dagurinn
112-dagurinn fór einnig vel fram á Skagaströnd. Hópakstur viðbragðsaðila vakti athygli og gleði, og börn fengu tækifæri til að skoða tæki og búnað við íþróttahúsið.

Störf í boði
Sveitarfélagið leitar nú að öflugum einstaklingum í sumarstörf, annars vegar flokkstjóra í Vinnuskóla og hins vegar afleysingafólki í íþróttahús og sundlaug. Nánar hér.
Krílasport
Að lokum er minnt á krílasport í íþróttahúsinu á laugardögum kl. 10–11, þar sem börn og fjölskyldur eru hvött til að mæta og njóta hreyfingar saman. Mæting hefur verið dræm undanfarið og vonumst við til þess að sjá fleiri á ferðinni með hækkandi sól!
Sveitarstjóri