Fundarboð sveitarstjórnar 9. september 2026

Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagastrandar miðvikudaginn 9. september 2026 kl. 16:30 á skrifstofu sveitarfélagsins að Túnbraut 1-3.

 

Dagskrá:

 

1. Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030

Tímaáætlun vegna vinnu við fjárhagsáæltun lögð fram.

 

2. Fjárhagsáætlun 2026

Viðauki við fjárhagsáætlun 2026 lagður fram til afgreiðslu.

3. Persónuverndarstefna Sveitarfélagsins Skagastrandar

Tillaga að uppfærði persónuverndartefnu Sveitarfélagsins Skagastrandar.

 

4. Erindisbréf fastanefnda Sveitarfélagsins Skagastrandar.

Erindisbréf fastanefnda Sveitarfélgsins Skagastrandar lagðar fram til staðfestingar.

 

5. Fasteign að Hafnarlóð 9

Minnisblað frá sveitarstjóra lagt fram.

 

6. Haustþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra 2026.

Boð á haustþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi Vestra 2026 dags. 31.08.2026.

 

7. Loftlagsstefna Íslands og sveitarfélög.

Glærur frá kynningarfundi sem fór fram 01.09.2026 lagðar fram.

 

8. Meðhöndlun lífúrgangs á Íslandi

Skýrsla frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. í apríl 2026 lögð fram.

 

9. Stofnfjárframlög til samfélagssinnaðra leigusala

Erindi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun dags. 02.09.2026 þar sem auglýst er eftir umsóknum um stofnframlögum til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum skv. lögum nr. 52/2026 og reglugerð nr. 183/2020.

 

10. Fyrirkomulag á upplýsingagjöf sveitarstjóra.

Tillaga frá S-lista Samfylkingarinnar og óháðra um að skýrslu sveitarstjóra verði gerð skil í fundargerð með það að markmiði að auka gagnsæi og upplýsingagjöf til íbúa um stöðu og starfsemi sveitarfélagsins. Jafnframt er lagt til að sveitarstjóra verði falið að undirbúa útsendingu sveitarstjórnarfunda samhliða innleiðingu nýrrar heimasíðu sveitarfélagsins með íbúagátt, með það að markmiði að auka aðgengi íbúa að störfum sveitarstjórnar og styrkja upplýsingamiðlun

 

11. Reglulegir viðtalstímar kjörinna fulltrúa.

Tillaga frá S-lista Samfylkingar og óháðra og B-lista Framsóknar og óháðra um reglulega viðtalstíma kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn með íbúum.

 

12. Atvinnumál- og atvinnuuppbygging í Sveitarfélagsinu Skagaströnd

Tillaga frá S-lista Samfylkingar og óháðra og B-lista Framsóknar og óháðra um að Atvinnu- og ferðamálanefnd að fara yfir tillögur og hugmyndir sem fram hafa komið á íbúaþingum sem haldin hafa verið á Skagaströnd undanfarin ár er varða atvinnumál og atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu.

 

13. Upplýsingagjöf sveitarstjóra

 

14. Bréf

a) Laura efh, dags. 21.08.2026

Varðar lóðina Einbúastíg 8, Skagaströnd.

 

15. Fundargerðir

a) Fundargerð aðalfundar Sjávarlíftæknisetursins BioPol ehf. sem fór fram 31.08.2026.

b) Fundargerð 51. fundar Fagráðs – málefni fatlaðs fólks, sem fór fram 31.08.2026

c) Fundargerð 143. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi, sem fór fram 31.08.2026.

c) Fundargerð 1001. fundar stjórnar Samband íslenskra sveitarfélaga, sem fór fram 28.08.2026.

 

Ólafur Þór Ólafsson

sveitarstjóri