Fyrsti fundur nýrrar sveitarstjórnar

Ný sveitarstjórn Skagastrandar átti sinn fyrsta fund í gær mánudaginn 8. júní 2026 og er fundargerð komin inn á vefinn. Á fundinum var Ragnheiður Erla Stefánsdóttir kjörin oddviti og Eydís Inga Sigurjónsdóttir varaoddviti en Samfylking og óháðir og Framsókn og óháðir á Skagaströnd hafa myndað saman meirihluta. Aðrir í sveitarstjórn eru Davíð Birkir Tryggvason, Ragnar Rögnvaldsson og Vigdís Elva Þorgeirsdóttir. Ástrós Elísdóttir sat fundinn sem varamaður fyrir Ragnar Rögnvaldsson. 

Ný sveitarstjórn hefur því tekið til starfa og framundan eru fjölmörg spennandi verkefni sem fela í sér bæði tækifæri og áskoranir sem miða að því að efla þjónustu við íbúa og styrkja samfélagið okkar til framtíðar.

Ljóst er þó að fyrstu mánuðirnir munu verða krefjandi. Á sama tíma og ný sveitarstjórn tekur við hafa orðið breytingar í lykilstöðum innan stjórnsýslu sveitarfélagsins þar sem sveitarstjóri hefur látið af störfum og verkefnastjóri á skrifstofu sagt upp. Það mun óhjákvæmilega hafa í för með sér ákveðnar áskoranir til að byrja með þar sem það mun taka tíma að byggja upp þá þekkingu og samfellu sem þarf til að halda öllum verkefnum á réttir leið. Sveitarstjórn mun leggja sig fram við að tryggja samfellu í rekstri og koma mikilvægum verkefnum áfram af festu og ábyrgð. Unnið er að ráðningu nýs sveitarstjóra.

Þrátt fyrir fjölda margar áskoranir ríkir bjartsýni innan sveitarstjórnar og væntingar um að með góðu samstarfi, opnum samskiptum og samstilltu átaki kjörinna fulltrúa, starfsfólks og íbúa að verkefnum komandi missera verði mætt af festu og ábyrgð og áfram unnið að uppbyggingu að farsælu sveitarfélag á Skagaströnd.

Ný sveitarstjórn þakkar íbúum fyrir traustið og hlakkar til samstarfsins á nýju kjörtímabili. Sveitarstjórn þakkar sömuleiðis fráfarandi sveitarstjórn og sveitarstjóra fyrir þeirra störf í þágu sveitarfélagsins.

Ef upp koma spurningar eða mál sem bregðast þarf við er íbúum bent á að hafa samband við kjörna fulltrúa Sveitarstjórn | Skagaströnd