Galdranámskeið með Einari Mikael á Skagaströnd

Helgina 23 og 24 mars verður nýtt og spennandi galdranámskeið fyrir börn á aldrinum 6 til 12 ára í Fellsborg á Skagaströnd.

 

 

Einar Mikael hefur sérhæft sig í mismunandi töfranámskeiðum fyrir börn síðastliðinn 8 ár núna er Galdraskólinn að opna aftur eftir 3 ára pásu.
Einar hefur kennt yfir 12.000 krökkum töfrabrögð á Íslandi.
Börn sem voru feimnir, óöruggir og með lítið sjálfstraust hafa tekið gríðarlegum breytingum eftir töfranámskeið með Einari Mikael.

Á námskeiðinu læra börnin ótrúlega galdra og magnaðar sjónhverfingar. Þau fá innsýn inní hinn dularfulla heim töframanna. Þau læra undirstöðuatriði í töfrabrögðum, einfalda og skemmtilega spilagaldra, hugsanalestur og sjónhverfingar.
Námskeiðið veitir börnunum aukið sjálfstraust, styrkir mannleg samskipti og þau læra að gera ótrúlega hluti. Í lok námskeiðsins þá setja börnin upp sýningu ásamt Einari Mikael þar sem þau sýna afrakstur námskeiðsins.
Allt Galdradót innifalið.

 

Hlakka til að hitta ykkur krakkar :)

Einar Mikael töframaður