Fyrri haustgöngur fara fram föstudaginn 11. september, seinni haustgöngur fara fram föstudaginn 18. september og eftirleit verður laugardaginn 3. október.
Gangnaforingi er Arnar Páll Guðjónsson.
Réttarstjóri í báðum réttum er Einar Haukur Arason.
Skagastrandarland ofan þjóðvegar, undanskilið er skógræktargirðing.
Í göngur skipi eftirtaldir gangamenn:
Fyrri göngur Seinni göngur
Jón Heiðar Jónsson 3 2
Magnús Guðmannsson 2 2
Einar Haukur Arason 1
Arnar Páll Guðjónsson 1 1
Rúnar Jósefsson 3 3
Sigþór Ottó Hallgrímsson 1 1
Steinar Kristjánsson 1 1
Í eftirleit fara fjórir menn. Þær annast Jón Heiðar Jónsson.
Með vísan til 20. greinar fjallskilareglugerðar A-Hún.: „Hafi búfjáreigandi engan hæfan mann til fjallskila og getur eigi útvegað hann, skal hann tilkynna hreppsnefnd eða fjallskilastjóra það skriflega fjórum dögum áður en fjallskilin eiga að vinnast, en þessir aðilar útvega mann eða annað sem vantar, svo sem hesta eða fæði, og borgar þá búfjáreigandi allan kostnað, sem af fjallskilum leiðir, án tillits til mats á þeim“.
Að öðru leyti en hér greinir fer um skyldur og réttindi manna eftir fjallskilasamþykkt fyrir AusturHúnavatnssýslu nr. 299/2009.
Fjallskilanefnd Skagamanna og Vindhælisdeildar, Víkum 13. ágúst 2026.