Gangnaseðill Skagstrendinga 2025
Fyrri haustgöngur fara fram föstudaginn 5. september, seinni haustgöngur fara fram föstudaginn 12. september og eftirleit verður laugardaginn 4. október.
Gangnaforingi er Magnús Guðmannsson.
Réttarstjóri í báðum réttum er Einar Haukur Arason.
Skagastrandarland ofan þjóðvegar, undanskilið er skógræktargirðing.
Í göngur skipi eftirtaldir gangamenn:
Fyrri göngur Seinni göngur
Jón Heiðar Jónsson 3 2
Magnús Guðmannsson 2 2
Einar Haukur Arason 1
Guðjón Ingimarsson 1 1
Rúnar Jósefsson 3 3
Í eftirleit fara fjórir gangamenn. Þær annast Jón Heiðar Jónsson.
Með vísan til 20. greinar fjallskilareglugerðar A-Hún.: „Hafi búfjáreigandi engan hæfan mann til fjallskila og getur eigi útvegað hann, skal hann tilkynna hreppsnefnd eða fjallskilastjóra það skriflega fjórum dögum áður en fjallskilin eiga að vinnast, en þessir aðilar útvega mann eða annað sem vantar, svo sem hesta eða fæði, og borgar þá búfjáreigandi allan kostnað, sem af fjallskilum leiðir, án tillits til mats á þeim“.
Að öðru leyti en hér greinir fer um skyldur og réttindi manna eftir fjallskilasamþykkt fyrir Austur-Húnavatnssýslu nr. 299/2009.
Fjallskilanefnd fyrrum Skagabyggðar, Skagabúð 6. ágúst 2025.