Kæru íbúar!
Í næstu viku fara fram umfangsmiklar malbikunarframkvæmdir í bænum. Eftirfarandi götur verða malbikaðar:
Byrjað verður á Oddagötu en nánara fyrirkomulag verður tilkynnt eftir helgina.
Undirbúningur framkvæmda - götusópun
Til að undirbúa malbikunina mun götusópun fara fram mánudaginn kl. 10:00. Lögð verður sérstök áhersla á þær götur sem verða malbikaðar síðar í vikunni en malbikunarframkvæmdir hefjast á miðvikudaginn.
Við biðjum íbúa við þessar götur vinsamlegast að færa bifreiðar sínar (t.d. upp í Fellsborg) svo hægt sé að sópa og undirbúa framkvæmdasvæðið.
Mikilvægar upplýsingar
Eftir að malbikun lýkur er mjög mikilvægt að ekki sé lagt á nýja malbikið í að minnsta kosti sólarhring, þar sem annars getur myndast för í yfirborðinu.
Reikna má með töluverðu raski á meðan á framkvæmdum stendur, en að þeim loknum verður umhverfið mun snyrtilegra og tilbúið fyrir sumarið. Hvetjum við íbúa til þess að nýta helgina vel og sópa stéttar og svæði fyrir framan húsin sín svo götusópunin nýtist sem best!
Við þökkum fyrir skilninginn og gott samstarf.
Sveitarstjóri