Hafnarsambandsþing í Reykjanesbæ

Hafnasambandsþing fór fram í Hljómahöll í Reykjanesbæ 22. og 23. október s.l. Þeir Ólafur Þór Ólafsson, sveitar- og hafnarstjóri, og Baldur Magnússon, hafnarvörður, sóttu þingið fyrir hönd Skagastrandarhafnar.

Hlutverk Hafnasambands Íslands er að koma fram gagnvart ríkisvaldinu og öðrum í málum er varða hafnirnar, að efla samstarf hafnanna og að vinna að öðru leyti að hvers konar sameiginlegum hagsmunamálum þeirra, svo sem samræmingu á reglugerðum og gjaldskrám og með því að miðla reynslu og upplýsingum.