Heimsendingar á bókum verður frestað til morguns 24. mars

Vegna óviðráðanlegra aðstæðna verður heimsendingu bóka frestað til morguns 24. mars.

Hægt er að skoða hvaða bækur eru til á bókasafninu á www.leitir.is

panta bækur á netfanginu: bokasafn@skagastrond.is eða á facebook síðu bókasafnsins sem finna má hér.

Bækur verða keyrðar út þriðjudags-, miðvikudags- og fimmtudagskvöld.

Búið verður að spritta allar bækur áður en þær eru afhentar og verða meðhöndlaðar með hönskum.

Engin bók fer aftur í útlán fyrr en viku eftir að henni er skilað inn.

Upplýsingar sem þarf að gefa upp við pantanir eru:

  • Nafn á bók
  • Kennitölu lánþega
  • Heimilisfang afhendingar

Sveitarstjóri