Hreinsun gatna og gönguleiða

Byrjað verður að sópa gangstéttar og götur á Skagaströnd í dag og mun vinnan halda áfram út vikuna. Eru íbúar hvattir til þess að sópa og hreinsa í kringum sínar lóðir.

Þá er mikilvægt að ökutæki séu ekki geymd í götum þannig að hægt sé að hreinsa þær almennilega.

 

Sveitarstjóri