Hringgerði vígt hjá Hestamannafélaginu Snarfara

Í dag var opið hús hjá Hestamannafélaginu Snafara og var þá hringgerði félagsins formlega vígt. Sæmundur Þór Hafsteinsson formaður hestamannafélagins fór yfir byggingasögu gerðisins og þakkaði velunnurum og sjálfboðaliðum fyrir þeirra þátt í að gerðið yrði að veruleika. Þá þakkaði hann sérstaklega Lárusi Ægi Guðmundssyni og hans fjölskyldu fyrir sitt framlag og Sveitarfélaginu Skagaströnd. Um 70 manns voru mættir þegar Katrín Sara Reynisdóttir afhjúpaði nafn hringgerðisins sem hlaut nafið Hringheimar. Séra Margrét Rut blessaði svo gerðið í framhaldinu. Sveitarfélagið Skagaströnd óskar hestamannafélaginu innilega til hamingju með þetta stórkostlega framlag til hestamennsku á svæðinu.