Veðurstofa Íslands hefur gefið út veðurviðvörun sem gildir um Skagaströnd frá miðvikudegi 14. október og fram til fimmtudagsins 15. október. Vegna þessa er mikilvægt að eigendur og ábyrgðaraðilar báta og skipa í Skagastrandarhöfn hugi að fleyjum sínum og séu á vaktinni á meðan veðrið gengur yfir.
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni í hádeginu þriðjudaginn 13. október tekur gul viðvörun gildi kl. 06:00 á miðvikudagsmorgni. Litur viðvörunarinnar breytist svo í appesínugulan þegar líður að miðvikudagskvöldi og fellur ekki úr gildi fyrr en kl. 06:00 fimmtudagsmorguninn 15. október.