Hugmyndir óskast - Stórfundur fyrir íbúa Norðurlands vestra

Mynd fengin að láni hjá SSNV
Mynd fengin að láni hjá SSNV

Þriðjudaginn 3. september kl 13-17 fer fram stórfundur fyrir íbúa Norðurlands vestra í Menningarhúsinu Miðgarði.

Þar verður haldið áfram að vinna að mótun framtíðarsýnar Norðurlands vestra í tengslum við gerð sóknaráætlunar áranna 2020-2024. Á sama tíma er unnið að sviðsmyndagreiningu fyrir atvinnulífið til ársins 2040. Fundurinn er síðasti fundurinn í vinnunni við gerð nýrrar sóknaráætlunar. 

Íbúar Norðurlands vestra eru hvattir til að mæta og koma sínum hugmyndum á framfæri. Yfirgripsmesta þekkingin á landshlutanum býr hjá íbúunum og því er afar mikilvægt að sem flestir taki þátt í vinnunni.

 Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn. Skráning fer fram hér https://bit.ly/2MBy8D0

Sóknaráætlanir eru stefnumótandi áætlanir sem taka til starfssvæða landshlutasamtaka sveitarfélaga. Í þeim koma fram stöðumat viðkomandi landshluta, framtíðarsýn, markmið og aðgerðir til að ná þeim markmiðum.