Íþróttavika Evrópu á Skagaströnd

Íþróttavika Evrópu (BeActive) er haldin á Skagaströnd nú árið 2026 á vegum Umf. Fram. Boðið er upp á fjölbreytta viðburði fyrir alla aldurshópa og eru öll hvött til að mæta á sem flesta þeirra.

Sumt er eingöngu ætlað börnum og fer fram á skólatíma, en flestir viðburðir eru opnir öllum. Áherslan er á að kynna íþróttir fyrir fólki sem vill bæta heilsuna, prófa eitthvað nýtt eða bara rifja upp gamla takta.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Umf. Fram.