Á hverju ári fögnum við sjómannadeginum – degi sem hefur djúpa merkingu í huga þjóðarinnar og á margan hátt svipar til sjálfs þjóðhátíðardagsins. Sérstaklega á stöðum eins og okkar, þar sem líf og saga Skagstrendinga er nátengd sjósókn og fiskveiðum.
Á þessum degi heiðrum við sjómenn landsins og þökkum þeim fyrir ómetanlegt framlag þeirra til samfélagsins. Þeir leggja grunn að velferð okkar með störfum sínum á hafinu – oft við krefjandi og hættulegar aðstæður. Um leið minnumst við þeirra sem fórnað hafa lífi sínu við sjósókn og sýnum minningu þeirra virðingu og þakklæti.
Í ár líkt og áður stendur Björgunarsveitin Strönd fyrir hátíðinni Hetjur hafsins, og verður að segjast að hátíðin hefur sjaldan eða aldrei verið glæsilegri! Sveitarfélagið styður stolt við viðburðinn enda er það okkur mikilvægt að hlúa að þeim menningararfi og hefðum sem tengjast hafinu og sjómennsku – grunnstoðum samfélagsins okkar.
Ég vil sérstaklega hrósa verkefnastjóra og dagskrárteymi hátíðarinnar í ár fyrir metnaðarfullt og framsækið starf. Kynningarefni hátíðarinnar hefur vakið mikla athygli og má nefna að á TikTok hefur það nú verið skoðað yfir 5 milljón sinnum sem er ótrúleg kynning fyrir hátíðina og fallega bæinn okkar sem er í forgrunni í þorra myndefnis. Dagskrá hátíðarinnar má kynna sér hér.
Þá vil ég einnig færa öllum þeim sem lagt hafa hönd á plóg við að fegra bæinn og skapa hátíðarsvip sérstakar þakkir. Slíkt framlag skiptir sköpum í litlu samfélagi eins og okkar.
Ég hlakka til að taka þátt í hátíðahöldunum með ykkur – göngum hægt um gleðinnar dyr og njótum þess að vera saman.
Alexandra Jóhannesdóttir
sveitarstjóri