Kveikt á jólatrénu á Hnappstaðatúni

Kveikt verður á jólatrénu á Hnappstaðatúni þriðjudaginn 6. desember klukkan 17:00

Jólajeppalestin mun mæta og heyrst hefur að í henni muni leynast nokkrir jólasveinar.

Hægt verður að grilla sykurpúða yfir opnum eldi, ef veður leyfir. Sykurpúðar og spjót á staðnum í boði sveitarfélagsins. 

Foreldrafélag Höfðaskóla mun mæta með kakóvagninn og selja úr honum heitt kakó með öllu tilheyrandi og churros á 500 krónur. 

Allir velkomnir!