Laus störf hjá Greiðslustofu Vinnumálastofnunar

Greiðslustofa Vinnumálastofnunar óskar eftir að ráða starfsfólk í öfluga liðsheild sína á Skagaströnd. Um er að ræða tímabundin störf út ágúst 2019. Vegna mikilla verkefna þurfa starfsmenn að geta hafið störf sem fyrst.

 

Í boði eru fjölbreytt verkefni með jákvæðum og uppbyggilegum samstarfshópi.

 

Áhugasamir geta kynnt sér starfsemi stofnunarinnar á heimasíðu hennar www.vinnumalastofnun.is.

 

Hvetjum alla sem hafa áhuga að sækja um – öllum umsóknum verður svarað.

 

 

Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist til Jensínu Lýðsdóttur, forstöðumanns Vinnumálastofnunar Norðurlandi vestra - Greiðslustofu, Túnbraut 1-3, 545 Skagaströnd eða á netfangið jensina.lydsdottir@vmst.is fyrir 10. apríl næstkomandi. 

 

Nánari upplýsingar veitir Jensína í síma 515-4800.