Laus störf - Matráður við mötuneyti Höfðaskóla

Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir eftir matráði til að sjá um skólamötuneyti Höfðaskóla.

Mötuneytið er vel útbúið og staðsett í Félagsheimilinu Fellsborg.

Matráður ber ábyrgð á matseld, matseðlum, innkaupum, skipulagningu og framkvæmd starfsins í eldhúsinu ásamt frágangi og þrifum.

Elda þarf mat fyrir um 70 nemendur sem og starfsmenn skólans.

Matseld fer fram þá daga sem skólastarf er í samræmi við gildandi skóladagatal.

Um er að ræða 70% starf á starfstíma skólans.

Hæfniskröfur:

  • Menntun á sviði matreiðslu er kostur
  • Reynsla af matreiðslu æskileg
  • Frumkvæði og metnaður í starfi
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Lipurð og færni í samskiptum
  • Góð skipulagsfærni

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um stöðuna.

Umsóknarfrestur er til og með 21. ágúst nk.

Sveitarstjóri veitir frekari upplýsingar:

Netfang: sveitarstjori@skagastrond.is

Sími: 848-0862.