Lausar íbúðir í Hnitbjörgum

Lausar eru til umsóknar 2 íbúðir í Hnitbjörgum á Blönduósi. Hnitbjörg er kjarni tíu íbúða fyrir aldraða í sjálfstæðri búsetu. Um er að ræða tveggja herbergja íbúðir. Önnur þeirra er á 1. hæð, útgengt er í sólskála og út á verönd. Hin er á 2. hæð, útgengt er í sólskála.

Íbúðirnar verða lausar til afhendingar 1. nóvember 2021 en umsóknarfrestur rennur út föstudaginn 15. október 2021. Sótt er um á sérstökum eyðublöðum sem aðgengileg eru á vefnum www.felahun.is eða á skrifstofu Félags- og skólaþjónustu A-Hún, Flúðabakka 2, Blönduósi. Haft verður samband við þá aðila sem eiga inni umsóknir á biðlista.

Á linknum hér fyrir neðan er hægt að nálgast umsóknareyðublað: https://www.felahun.is/static/files/eydublod/umso-kn-vegna-leigui-bu-da-fyrir-aldrada.pdf

Á linknum hér fyrir neðan er hægt að nálgast reglur um úthlutun leiguíbúða fyrir aldraða: https://www.felahun.is/static/files/reglur/u-thlutunarreg-i-bu-da-f-aldrada-1.pdf

Nánari upplýsingar veitir Sara Lind Kristjánsdóttir, félagsmálastjóri, í síma 455 4170 / 863-5013 eða í tölvupósti sara@felahun.is