Laust er starf slökkviliðsstjóra Slökkviliðs Skagastrandar

Auglýst er eftir slökkviliðsstjóra fyrir slökkvilið Skagastrandar.

Meðal verkefna slökkviliðsstjóra eru daglegur rekstur slökkviliðs, gerð brunavarnaráætlunar, fræðsla og þjálfun slökkviliðsmanna, dagleg umhirða og minniháttar viðhald búnaðar, ásamt eldvarnareftirliti á starfsvæði Slökkviliðs Skagastrandar sem tekur til Sveitarfélagsins Skagastrandar og Skagabyggðar, auk öðru því sem til fellur innan starfssviðs samkvæmt lögum og reglugerðum sem við eiga.

Starfshlutfall er 30-50% auk bakvakta.

Slökkviliðsstjóri gengur bakvaktir eftir nánara samkomulagi. Slökkviliðsstjóri er æðsti yfirmaður slökkviliðsins og heyrir beint undir sveitarstjóra.

Slökkvistöð Slökkviliðs Skagastrandar er staðsett á Skagaströnd.

Umsækjendur skulu uppfylla ákvæði 2. mgr. 15. gr. laga nr. 75/2000 um brunavarnir.

Æskilegt er að viðkomandi hafi ríka þjónustulund, reynslu í stjórnun og hæfni í mannlegum samskiptum ásamt auknum ökuréttindum í flokki C eða vilja og getu til þess að afla sér slíkra réttinda.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi LSS og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Alexandra Jóhannesdóttir sveitarstjóri í síma 455 2700 eða á netfanginu sveitarstjori@skagastrond.is

Umsóknarfrestur er til og með 9. janúar 2022. Umsókn ásamt kynningarbréfi skal senda á netfangið: sveitarstjori@skagastrond.is