Laust starf - Matráður við mötuneyti Höfðaskóla

Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir eftir matráði til að sjá um skólamötuneyti Höfðaskóla.

Matráður ber ábyrgð á matseld, matseðlum, innkaupum, skipulagningu og framkvæmd starfsins í eldhúsinu ásamt frágangi og þrifum. Elda þarf mat fyrir um 60 nemendur sem og starfsmenn skólans og er mötuneytið vel útbúið og staðsett í Félagsheimilinu Fellsborg.

Matseld fer fram þá daga sem skólastarf er í samræmi við gildandi skóladagatal.

Um er að ræða 70% starf á starfstíma skólans.

Hæfniskröfur:

  • Menntun á sviði matreiðslu er kostur
  • Reynsla af matreiðslu æskileg
  • Frumkvæði og metnaður í starfi
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Lipurð og færni í samskiptum
  • Góð skipulagsfærni

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Ragnheiður Stefánsdóttir, staðgengill sveitarstjóra veitir frekari upplýsingar um starfið í síma 866 8789 eða með tölvupósti á netfangið sveitarstjori@skagastrond.is.

Umsókn, kynningabréf og ferilskrá skal senda á netfangið sveitarstjori@skagastrond.is. Umsóknarfrestur er til og með 26. júlí næstkomandi.