Laust starf - Umsjónarmaður félagsstarfs 60+

Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir laust til umsóknar starf umsjónarmanns félagsstarfs 60+.

Í starfinu felst utanumhald starfseminnar, rekstur á rými starfsins í Fellsborg og önnur tilfallandi verkefni.

Umsjónarmaður félagsstarfsins þarf að vera þjónustulundaður, jákvæður og hafa áhuga á að takast á við fjölbreytt verkefni sem starfseminni fylgja. Þekking og/eða reynsla í hannyrðum er kostur.

Félagsstarfið hefur farið fram í Félagsheimilinu Fellsborg frá 14:00 - 17:00 á mánudögum og fimmtudögum.

Gert er ráð fyrir 30% starfshlutfalli og launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri, veitir frekari upplýsingar um starfið í síma 455 2700 eða með tölvupósti á netfangið sveitarstjori@skagastrond.is.

Umsókn ásamt stuttu kynningabréfi skal senda á netfangið sveitarstjori@skagastrond.is. Umsóknarfrestur er til og með 30. október næstkomandi.