Leigufélagið Bríet og Svf. Skagaströnd óska eftir byggingaraðilum

Samstarfsverkefni HMS og Sveitarfélagsins Skagastrandar
Samstarfsverkefni HMS og Sveitarfélagsins Skagastrandar

Leigufélagið Bríet og Sveitarfélagið Skagaströnd óska eftir byggingaraðilum til að taka þátt í uppbyggingu íbúða í sveitarfélaginu.

Sveitarfélagið Skagaströnd og Leigufélagið Bríet stefna á uppbyggingu á hagkvæmum leiguíbúðum á Skagaströnd og auglýsa því eftir byggingaraðilum til samstarfs.

Byggingaraðili skal vera aðalverktaki og annast framkvæmd verkefnis í samráði við sveitarfélagið og Leigufélagið Bríeti.

 

Gögn fyrir samstarfsaðila er hægt að nálgast með að senda tölvupóst á drifa@briet.is eða sveitarstjori@skagastrond.is og skal umsóknum byggingaraðila skilað fyrir mánudaginn 1. ágúst 2022 á framangreind netföng.

Við val á byggingaraðilum til samstarfs verður tekið tillit til reynslu aðila ásamt hagkvæmni og gæðum lausna.

Nánari upplýsingar veita Drífa Valdimarsdóttir framkvæmdastjóri Bríetar (drifa@briet.is), Elmar Erlendsson verkefnastjóri hjá Tryggð byggð (elmar.erlendsson@hms.is) og Alexandra Jóhannesdóttir sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagastrandar.