Listsýning nemenda Barnabóls

Listsýning nemenda Leiksskólans Barnabóls hefur verið sett upp á fyrstu hæð Túnbrautar 1-3. Sýningin er í ganginum á milli skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar og afgreiðslu Landsbankans. Fólk er hvatt til að taka sér tíma til að kíkja við og skoða verk þessara ungu listamanna. Sýningin mun standa til 16. október n.k.